Fundir Safnaráðs

Skv. verklagsreglum fundar Safnaráð að meðaltali einu sinni í mánuði, oftast á fimmtudegi og er þá fjallað um og afgreidd erindi og önnur mál á starfsvettvangi ráðsins.  Samkvæmt fundaáætlun er ekki gert ráð fyrir fundum í júní, júlí og desember.  Fundi sitja ráðsmenn eða varamenn þeirra og framkvæmdastjóri.  Fundaáætlun er sett í upphafi árs en dagsetningar funda geta breyst frá því sem áætlun segir til um.  Fundir utan dagskrár eru ákvarðaðir eftir þörfum.



     « Smellið á undirsíður fyrir fundaáætlun og fundargerðir.