Íslenski safnadagurinn og alþjóðlegi safnadagurinn

Alþjóðlegi safnadagurinn - um 18. maí ár hvert

Alþjóðlegi safnadagurinn er skipulagður af ICOM, Alþjóðaráði safna.  Íslandsdeild ICOM sér um kynningu á Alþjóðlega safnadeginum sem haldinn er hátíðlegur í kringum 18. maí ár hvert.  Sjá nánar á vefsíðu ICOM:  www.icom.is

_______________________ 

Íslenski safnadagurinn - annan sunnudag í júlí ár hvert

Íslenski safnadagurinn var til margra ár í umsjá Íslandsdeildar ICOM en árið 2005 tók skrifstofa Safnaráðs við framkvæmd kynningar á honum.  Íslenski safnadagurinn er annar sunnudagur í júlí ár hvert.

Markmið Íslenska safnadagsins
Markmið með íslenska safnadeginum er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar hinna sameiginlegu verðmæta þjóðarinnar og jafnframt um þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og afþreyingar fyrir alla, sem stofnanir í safnastarfi ástunda.

Dagskrá Íslenska safnadagsins
Safnastofnanir eru árlega  hvattar til að halda daginn hátíðlegan á einn eða annan hátt í dagskrá sinni. Íslandsdeild ICOM sá til margra ára um framkvæmd á kynningu dagskrár Íslenska safnadagsins.  Undirbúningsnefnd Íslenska safnadagsins, sem í sitja, ásamt frkv.stj. Safnaráðs, fulltrúar höfuðsafna (Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands og Náttúruminjasafns Íslands), Íslandsdeildar ICOM og Félags íslenskra safna og safnmanna,  sér um að ákvarða útfærslu á kynningu og skrifstofa Safnaráðs sér um frekari framkvæmd.

Auglýsing í Morgunblaðinu
Hefðin er sú að stór sameiginleg auglýsing er birt í Morgunblaðinu daginn fyrir Íslenska safnadaginn, þar sem dagskrá safnadagsins er kynnt og athygli vakin á blómlegri starfsemi á þessu sviði.

Staðbundnir árlegir viðburðir á söfnum eftir svæðum

                              Staðbundnir árlegir viðburðir á söfnum eftir svæðum

Akureyri

 JÚNÍ

Flughelgi á Akureyrarflugvelli

Flugminjasafn Íslands á Akureyri skipuleggur árlega Flughelgi þar sem fram fer íslandsmót í listflugi og boðið er upp á skemmtilegar uppákomur, svo sem vélflug, svifflug, fisflug og fallhlífastökk. 

Reykjavík

 

FEBRÚAR

Safnanótt í Reykjavík

Í tengslum við Vetrarhátíð í Reykjavík í febrúar 2005 var skipulögð safnanótt (18. febrúar 2005) með fjölbreyttri dagskrá safna á Reykjavíkursvæðinu.  Stefnt er að því að gera safnanótt að föstum lið í Vetrarhátíð í Reykjavík.  Sjá nánar á vefsíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is

 ÁGÚST

Menningarnótt í Reykjavík

Í tilefni af Menningarnótt í Reykjavík í ágúst hafa söfn á Reykjavíkursvæðinu skipulagt sérstaka dagskrá.  Sjá nánar á vefsíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is

Suðurland

NÓVEMBER 

Safnahelgi á suðurlandi

Söfn á suðurlandi standa fyrir safnahelgi á suðurlandi í nóvember ár hvert.  Sjá nánar á vefsíðu Áborgar www.arborg.is