Skrá yfir safnastarf

Safnaráð heldur úti vefsíðu, www.safnastarf.is, yfir safna- og sýningastarfsemi á Íslandi á sviði menningarminja, náttúruminja og lista. 

SAFN er stofnun sem talin er uppfylla öll ákvæði 4. gr. safnalaga nr. 106/2001.
SETUR eða SAFNVÍSIR er stofnun sem talin er uppfylla hluta en ekki öll ákvæði 4. gr.
SÝNING er stofnun þar sem fyrst og fremst er um að ræða lifandi miðlun (einn þáttur safnastarfs) og
ÖNNUR SAFNASTARFSEMI eru til að mynda félög á sviði safnastarfs (s.s. Félag íslenskra safna og safnmanna)

Skráin er í vinnslu og ber því að taka innihald hennar og flokkanir safnastarfsemi með fyrirvara.

Smelltu hér til að fara á safnastarf.is