Nýting styrkja

Styrkjum er úthlutað til eins árs í senn. Nýti styrkþegi ekki styrk sama ár og honum er úthlutað, fellur styrkurinn niður, nema sérstaklega sé sótt um frestun hans. Umsókn um frest skal vera skrifleg og rökstudd.

Safnaráð hefur eftirlit með því, að styrkir séu notaðir til þess, sem getið var í umsóknum. Styrkþegum er skylt að kynna fulltrúa safnaráðs stöðu verksins, sé þess óskað. Safnaráð getur óskað eftir áfangaskýrslum, ef þurfa þykir, safnaráði að kostnaðarlausu. Hægt er að svipta umsækjanda styrk, telji  safnaráð að verkið sé ekki unnið í samræmi við umsókn og innsend gögn. Að verkefni loknu kynnir styrkþegi árangur og niðurstöður fyrir safnaráði með skriflegri skýrslu. (Sjá úthlutunarreglur).