Umsóknir í safnasjóð

Styrkir til safna skv. safnalögum nr. 106/2001 

Tekið er móti styrkumsóknum fyrir árið 2012 til og með 1. nóvember 2011. 

Auglýsing v. umsókna í safnasjóð 2012:

Safnaráð auglýsir eftir umsóknum frá menningarminjasöfnum, náttúruminjasöfnum og listasöfnum, um styrki úr safnasjóði á árinu 2012. 

Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem falla undir safnalög nr. 106/2001.  Safnaráð úthlutar úr sjóðnum samkvæmt safnalögum og úthlutunarreglum ráðsins.  Upphæð og fjöldi veittra styrkja fer eftir fjárveitingu á fjárlögum og umsóknum. 

Söfn sem falla undir safnalög geta sótt um verkefnastyrki til sjóðsins. Við ákvörðun styrkja árið 2012 munu verkefnastyrkir fá aukið vægi á kostnað rekstrarstyrkja. 

Til þess að geta sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði þarf safn að uppfylla skilyrði skv. ákvæðum 10. gr. safnalaga m.a. um að safn skuli hafa tryggðan fjárhagsgrundvöll.

Söfn sem hljóta rekstrarstyrk á fjárlögum munu ekki hljóta rekstrarstyrk úr safnasjóði sama ár, en geta áfram sótt um verkefnastyrki.

Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2011.  Umsóknum skal skila með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað á vefsíðu safnaráðs: www.safnarad.is.  Öllum fylgigögnum með umsókn skal skila áður en umsóknarfrestur rennur út.  Nánari upplýsingar á skrifstofu safnaráðs.


SAFNARÁÐ
Suðurgötu 41
101 Reykjavík
sími: 530 2216  bréfsími: 530 2231

Vinsamlegast athugið að best er að viðhengi beri nöfn án séríslenskra stafa.

safnarad@safnarad.is - www.safnarad.is

Smelltu hér fyrir Upplýsingahefti fyrir söfn vegna umsókna í safnasjóð 2012.

SMELLTU HÉR FYRIR RAFRÆNT UMSÓKNAREYÐUBLAÐ 2012


Safnaráð hvetur alla safnmenn til að gerast aðilar að safnlistanum, tilkynninga- og umræðuvettvangi safnmanna, þar sem ráðið birtir allar tilkynningar sínar og auglýsingar.  Sjá nánar hér:  Safnlistinn.