Minjasafn Reykjavíkur hlýtur NODEM verðlaunin 2006 fyrir Landnámssýninguna 871 +/-2

Í fréttatilkynningu frá Minjasafni Reykjavíkur segir:
 
"NODEM 2006
Nordic Digital Excellence in Museums
 
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 hlaut verðlaun fyrir bestu starfænu miðlun í söfnum, sem veitt voru á ráðstefnunnin NODEM 2006, Nordic Digital Excellence in Museums, sem haldin var í Oslo í síðustu viku.
Í áliti dómnefndar segir meðal annars að verðlaunin séu veitt Minjasafni Reykjavíkur og Gagarín, samstarfsfyrirtæki þess um margmiðlun, fyrir Landnámssýninguna Reykjavík 871±2. “Sýningin er glæsileg á að líta, fróðleg og nýstárleg og er gerð af tilfinningu fyrir rýminu og staðnum. Hér fara saman fjölbreytt miðlunartækni, gott aðgengi og framsetning í hLandnámssýningin Reykjavík 871±2 fjallar um landnám í Reykjavík og þar er til sýnis rúst af skála frá landnámsöld sem fannst við fornleifarannsókn í Aðalstræti árið 2001. Frá því að sýningin var opnuð 12. maí síðastiðinn hafa nálægt 25.000 gestir heimsótt hana, innlendir og erlendir og á öllum aldri. Hafa þeir gert mjög góðan róm að sýningunni og þykir vel hafa til tekist að nýta sýningarrýmið og  tengja saman hina ævafornu skálarúst og nýjustu sýningatækni. Gagarín vann margmiðlunarþátt sýningarinnar í samstarfi við þýska fyrirtækið Art+Com í Berlín.
Landnámssýningin  Reykjavík 871±2 er opin alla daga klukkan 10-17 til og með 31. desember.
Um jól og áramót verður lokað 24.-26. desember, opið verður á gamlársdag kl. 10-14 en lokað á nýjársdag. Á sama tíma er safnbúðin opin og þar má finna nýstárlega minjagripi og  sérhannaða gjafavöru.
Í janúar og febrúar næstkomandi verður lokið við forvörslu torfveggja í skálarústinni og verður sýningin lokuð á meðan. Forvörsluna annast sérfræðingar frá Nordjyllands Historiske Museum í Álaborg en  þetta er í fyrsta sinn sem torf hefur verið forvarið með þessum hætti til varðveislu innan dyra.

Sýningin verður opnuð að nýju laugardaginn 3. mars 2007."
Nánar um NODEM