AÐGENGI
- FORSÍÐA
- HVAÐ ER SAFNARÁÐ?
- LÖG OG REGLUR
- FUNDIR SAFNARÁÐS
- SAFNASJÓÐUR
- STARFSEMI SAFNARÁÐS
- ÍSLENSK SAFNASTARFSEMI
- FRÉTTIR AF SÖFNUM
- SKRÁ YFIR SAFNASTARF
- SAFNADAGAR OG ÁRLEGIR VIÐBURÐIR
- AÐGENGISMÁL
- ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNIN
- VERÐLAUN EVRÓPURÁÐS SAFNA
- NODEM VERÐLAUNINN
- FARSKÓLI SAFNMANNA
- LEIÐBEININGAR OG FRÓÐLEIKUR
- ÚTFLUTNINGUR MENNINGARVERÐMÆTA
- TENGLAR
Minjasafn Reykjavíkur tilnefnt til verðlauna Evrópuráðs safna 2008
Safnaráð samþykkti á fundi þann 18. janúar 2007 að tilnefna Minjasafn Reykjavíkur til verðlauna Evrópuráðs safna 2008 (European Museum of the Year Award 2008 - EMYA2008) fyrir glæsilega viðbót við safnið, Landnámssýninguna 871 +/-2 í Aðalstræti. Í framhaldi heimsótti dómnenfnd frá European Museum Forum (EMF) safnið í byrjun ágúst 2008 til að meta safnið. Safnið var valið til áframhaldandi keppni og keppti til úrslita á aðalfundi EMF þann 17. maí 2008 í Dublin, Írlandi, þar sem úrslit voru tilkynnt. (Sjá upplýsingar um verðlaunahafa EMYA2008 á www.europeanmuseumforum.org)
Til greina koma söfn sem stofnuð hafa verið á sl. 2 árum, eða söfn unnið hafa að umfangsmiklum viðbótum, endurbótum eða breytingum á sl. 2 árum. Evrópusafnaverðlaunin eru veitt af Evrópuráði safna (European Museum Forum - EMF).
Til greina koma söfn sem stofnuð hafa verið á sl. 2 árum, eða söfn unnið hafa að umfangsmiklum viðbótum, endurbótum eða breytingum á sl. 2 árum. Evrópusafnaverðlaunin eru veitt af Evrópuráði safna (European Museum Forum - EMF).
Safnaráð hefur áður tilnefnt tvö söfn til samkeppninnar og náðu bæði glæsilegum árangri. Síldarminjasafnið á Siglufirði var tilnefnt til samkeppninnar 2004 fyrir umfangsmiklar endurbætur á safninu og hlaut safnið Micheletti verðlaunin það ár, en um er að ræða bjartsýnisverðlaun til safns á svið tækni og/eða iðnaðar og ein þriggja aðalverðlauna í keppninni. Þjóðminjasafn Íslands var tilnefnt til verðlaunanna 2006 fyrir hinar miklu endurbætur sem þar hafa átt sér stað og hlaut safnið sérstaka viðurkenningu EMF fyrir framúrskarandi árangur.
Þjóðminjasafn Íslands hlýtur sérstaka viðurkenningu Evrópuráðs safna 2006
Þjóðminjasafn Íslands hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur við endurbætur safnsins á verðlaunaafhendingu samkeppninnar Safn Evrópu (European Museum of the Year Award 2006 - EMYA2006) á ársfundi Evrópuráðs safna (European Museum Forum - EMF) 10. - 13. maí í Lissabon, Portúgal.
Safnaráð tilnefndi Þjóðminjasafnið til samkeppninnar í janúar 2005, en í framhaldi af tilnefningunni heimsóttu fulltrúar EMF safnið og gerðu úttekt á því í september sama ár.
Þjóðminjasafnið er eitt þriggja safna sem skipa saman 2. - 4. sæti í keppninni með sérstakri viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Auk Þjóðminjasafnsins hlutu ARoS listasafnið í Árósum og inatura, náttúruminjasafn í Austurríki slíka viðurkenningu. Fabiola, drottning Belgíu og verndari EMF, veitti fulltrúum safnanna viðurkenningu.
Aðalverðlaunin "Safn Evrópu ársins 2006" hlaut náttúruvísindasafnið CosmoCaixa í Barcelona á Spáni. Verðlaun sem veitt eru á vegum Evrópuráðsins (The Council of Europe Prize 2006) komu í hlut Churchill Museum í London. Þá hlaut safnið Tom Tits Experiment í Södertälje, Svíþjóðh Micheletti verðlaunin 2006, sem eru bjartsýnisverðlaun til safns á sviði tækni eða iðnaðar. Þess skal getið að Síldarminjasafnið á Siglufirði, sem Safnaráð tilnefndi fyrst íslenskra safna til samkeppni Evrópuráðs safna 2004, hlaut Micheletti verðlaunin það ár.
Skilyrði tilnefningar og þátttöku safns í samkeppninni er að safnið hafi lokið umfangsmiklum breytingum eða endurskipulagningu á einhverjum þætti starfseminnar á síðastliðnum tveimur árum, eða að um sé að ræða nýtt safn, stofnað á síðastliðnum tveimur árum. Ástæða tilnefningar Þjóðminjasafnsins til samkeppninnar 2006 er vel heppnuð endurskipulagning og endurhönnun sýninga og starfsemi safnsins, en metnaðarfullt starf þessa höfuðsafns og þróun hefur skapað ný, framsýn og mikilvæg viðmið fyrir íslenskt safnastarf í heild.
Safnaráð fagnar þessum áfanga, en sú viðurkenning sem Þjóðminjasafni Íslands hlotnast með sérstakri viðurkenningu Evrópuráðs safna fyrir framúrskarandi árangur, ásamt þeirri viðurkenningu sem Síldarminjasafnið hlaut árið 2004, er hvatning fyrir safnastarf í landinu öllu. Ljóst er samkvæmt þessu að safnastarf á Íslandi siglir í rétta átt og er, þegar best gerist, fyllilega sambærilegt við það besta í Evrópu.
Rakel Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri Safnaráðs
framkvæmdastjóri Safnaráðs
Síldarminjasafnið vinnur Micheletti verðlaun Evrópuráðs safna 2004
Síldarminjasafnið vinnur Micheletti-verðlaunin.
Þann 8. maí 2004 hlaut Síldarminjasafnið á Siglufirði ein þriggja aðalverðlauna Evrópuráðs safna (European Museum Forum), Micheletti-verðlaunin, sem veitt eru fyrir framúrskarandi starf á sviði vísinda, iðnaðar eða tækni. Verðlaunaafhendingin fór fram í Aþenu, Grikklandi. Að þessu sinni kepptu 40 söfn til verðlaunana. Verðlaunin Safn Evrópu ársins 2004 (European Museum of the Year Award 2004) hlaut hið mikla og glæsilega fornminjasafn í Alicante á Spáni. Verðlaun sem veitt eru á vegum Evrópuráðsins (The Council of Europe Prize) komu í hlut Heilsugæslusafnsins í Edirne, Tyrklandi.
Safnaráð tilnefndi Síldarminjasafnið til keppninnar í febrúar á síðasta ári, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt safn hlýtur tilnefningu til keppninnar. sem verið hefur við lýði í 27 ár. Í framhaldi af þeirri tilnefningu heimsótti fulltrúi keppninnar safnið sl. sumar og kynnti sér starfsemi þess.
Að allt að 40 þúsund söfnum víðsvegar í Evrópu stendur til boða þátttaka í þessari virtu keppni. Er hefðin sú að um 60% þeirra safna sem eru í framboði á hverju ári er boðin áframhaldandi þátttaka, skv. mati dómnefndar.
Meðal þeirra þátta sem dómnefndin hefur til hliðsjónar við val sitt er framtakssemi sem líkleg er til að hafa áhrif á safnasviðinu jafnt innanlands sem erlendis. Horft er til allra þátta í starfseminni, m.a. framsetningar, áhrifaríkrar miðlunar og fræðslu og mikilvægi safnsins fyrir samfélag þess. Þótti dómnefndinni sérstaklega mikið til þess koma hversu fámennu starfsliði safnið hefur yfir að ráða, m.t.t. þess árangurs sem náðst hefur.
Það er mikill heiður fyrir Síldarminjsafnið að hljóta þessa viðurkenningu fyrir metnaðarfullt starf sitt og jafnframt hvatning fyrir safnið, sem og önnur íslensk söfn. Að safnið skuli hafa hlotið verðlaun fyrir framúrskarandi starf á sviði iðnaðar og tækni er sérstaklega virðingarvert, þar sem varðveisla menningararfs tengdum iðnaði er eitt af þeim verkefnum sem eru efst á baugi í safnaumræðunni í dag.
Rakel Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri Safnaráðs




