Lög og reglur

Safnaráð er fjölskipað stjórnvald og stjórnsýslunefnd sem m.a. hefur því hlutverki að gegna að úthluta styrkjum úr Safnasjóði til byggða- og minjasafna, listasafna og náttúruminjasafna. Hér fyrir neðan er listi yfir lög og reglur sem Safnaráð fer að í starfsemi sinni og önnur lög/reglur sem gilda um starfsemi menningarstofnana (þar á meðal safna):

Safnalög nr. 106/2001
      Úthlutunarreglur Safnasjóðs
      Verklagsreglur Safnaráðs

Siðareglur ICOM

Þjóðminjalög nr. 107/2001
      Reglugerð nr.896/2006 um Þjóðminjasafn Íslands
      Reglur um útlán safngripa úr Þjóðminjasafni Íslands - Almennar reglur

Lög um Listasafn Íslands nr. 58/1988

Lög um Náttúruminjasafn Íslands nr. 35/2007

Lög um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur nr. 60/1992

Lög um húsafriðun nr. 104/2001

Lög um flutning menningarverðmæta úr landi og um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 105/2001
      Verklagsreglur Safnaráðs um útflutning menningarverðmæta úr landi 

Stjórnsýslulög nr. 37/1993


Fyrir söfn sem starfa skv. skipulagsskrá/stofnskrá sem hlotið hefur staðfestingu dómsmálaráðherra:

Lög um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá
(Ath. söfnum er ekki skylt að leita staðfestingar dómsmálaráðherra á stofnskrá/skipulagsskrá)


Fyrir söfn sem eru sjálfseignarstofnanir:

Lög um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur nr. 33/1999


Gjafir og fjárframlög til safna eru frádráttarbær til skatts sbr. 31. gr., 2. tölul. laga um tekjuskatt nr. 90/2003:

Lög um tekjuskatt nr. 90/2003 
     Reglugerð um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi nr. 483/1994 (sjá 15. - 18. gr. reglugerðarinnar) 

Húsnæði safns skal vera hannað og byggt og öll aðstaða þar í samræmi við skipulags- og byggingarlög, reglugerðir og staðla þar um.  Jafnframt lög um brunavarnir og vinnuverndarlög:

Skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 
     Byggingarreglugerð nr. 441/1998
     Skipulagsreglugerð nr. 400/1998

Lög um brunavarnir nr. 75/2000

Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980


Söfn eru undanþegin fasteignaskatti sbr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Friðuð hús eru einnig undanþegin fasteignagjaldi sbr. 7. gr. laga um húsafriðun nr. 104/2001:

Lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995

Lög um húsafriðun nr. 104/2001