Starfsemi Safnaráðs
Safnaráð er skv. safnalögum nr. 106/2001 samráðsvettvangur safna en stýrir jafnframt Safnasjóði og veitir styrkjum úr sjóðnum til styrkhæfra safna í samræmi við lögin. Skv. verklagsreglum eru helstu verkefni ráðsins:· að meta starfsemi safna
· að halda skrá yfir söfn á landinu
· að stjórna safnasjóði og veita úr honum styrki samkvæmt úthlutunarreglum sjóðsins
· að hafa eftirlit með söfnum og þeim framkvæmdum sem ráðið styrkir
· að gefa álit um safnamál
· að veita ráðgjöf og fræðslu um safnamál
« Smellið á undirsíður fyrir upplýsingar um ýmsa þætti í starfsemi Safnaráðs.




