ÍSLENSKI SAFNADAGURINN 2011, SUNNUDAGINN 10. JÚLÍ


DAGSKRÁ safna á íslenska safnadaginn 2011, þann 10. júlí, má finna neðar á síðunni eða

smella hér fyrir dagskrá íslenska safnadagsins 2011 í pdf skjali. 


Slagorð dagsins:
"Fyrir fjölskylduna"

Landsmenn eru hvattir til að heimsækja söfn á Íslenska safnadaginn og njóta skemmtunar og fræðslu fyrir alla fjölskylduna.

____________________________________________________________________________
Eftirfarandi aðilar standa að kynningu íslenska safnadagsins:

          Safnaráð
          Þjóðminjasafn Íslands
          Listasafn Íslands
          Náttúruminjasafn Íslands
          Íslandsdeild ICOM, alþjóðaráðs safna
          Félag íslenskra safna og safnmanna          
____________________________________________________________________________

Dagskrá safna á íslenska safnadaginn 2011:


REYKJAVÍK

SELTJARNARNES

MOSFELLSBÆR

KÓPAVOGUR

GARÐABÆR

HAFNARFJÖRÐUR

VESTURLAND

VESTFIRÐIR

NORÐURLAND

AKUREYRI

AUSTURLAND

SUÐURLAND

REYKJANES



REYKJAVÍK

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Opið frá kl 14 – 17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Leiðsögn kl. 15 og 16
www.lso.is

Listasafn Einars Jónssonar
Eiríksgötu
Opið frá 14 -17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
www.skulptur.is

Listasafn Íslands
Fríkirkjuvegi 7, Reykjavík
Opið kl. 10 – 17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Kona / Femme; Louise Bourgeois
Kjarval, úr fórum Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur
Fjölskylduleiðsögn um sýninguna Kona / Femme kl. 14.00 í fylgd Dagnýjar Heiðdal listfræðings.
www.listasafn.is

LISTASAFN REYKJAVÍKUR
     Kjarvalsstaðir 
     Flókagötu, Reykjavík 
     Opið frá 10 - 17 
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn 
     Sýningar: Jór! Hestar í íslenskri myndlist 
     Kjarval Lykilverk 
     Smiðja - Litbrigði hestsins 
     www.listasafnreykjavikur.is

     Hafnarhús 
     Tryggvagötu 17, Reykjavík 
     Opið frá 10 - 17 
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn 
     Sýningar: Erró - Klippimyndir 
     Sjónarmið - Á mótum myndlistar og heimspeki 
     Tomi Ungerer - Teikningar og veggspjöld 
     www.listasafnreykjavikur.is

     Ásmundarsafn 
     V/ Sigtún, Reykjavík 
     Opið frá 10 - 16 
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn 
     Sýningar: Frá hugmynd að höggmynd - Teikningar Ásmundar Sveinssonar 
     Magnús Árnason - Homage
     www.listasafnreykjavikur.is

MINJASAFN REYKJAVÍKUR
     Árbæjarsafn
     Kistuhyl
     Opið frá 10-17
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
     Brot af því besta úr starfi Árbæjarsafns.
     www.minjasafnreykjavikur.is

     Landnámssýningin 
     Aðalstræti 16
     Opið frá 10-17
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
     Boðið upp á leiðsagnir um sýninguna.
     www.minjasafnreykjavikur.is

     Víkin - Sjóminjasafn Reykjavíkur
     Grandagarði 8
     Opið frá 11-17
     Tveir fyrir einn á íslenska safnadaginn
     Leiðsögn um sýninguna Björtum öngli beitirðu, um Litla Fiskibók Jóns Sigurðssonar kl. 13 og 15.   
     www.sjominjasafn.is

Þjóðmenningarhúsið
Hverfisgötu 15
Opið frá  11 - 17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Þúsund ár – ný yfirlitssýning um íslenska myndlist, 1. áfangi: 19. öld til nútímans.
Fjölskylduratleikur um sýninguna.
Óskabarn- æskan og Jón Sigurðsson.
Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir.
Leiðsagnarhandrit fyrir fjölskyldur með sögum af Fáfni og Miðgarðsormi.
www.thjodmenning.is

Þjóðminjasafn Íslands
Suðurgötu 41
Opið frá 10-17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Leiðsögn á ensku kl. 11, leiðsögn á íslensku kl. 14
www.thjodminjasafn.is


SELTJARNARNES

Lækningaminjasafn Íslands - Nesstofa
Nesi við Seltjörn
Opið frá 13-17
Ókeypis aðgangur
www.laekningaminjasafn.is


MOSFELLSBÆR

Gljúfrasteinn - hús skáldsins
Mosfellsbæ
Opið frá kl 9- 17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Boðið upp á hljóðleiðsögn allan daginn.
Tónleikar kl. 16.00 Þórarinn Stefánsson píanóleikari spilar þjóðlega tónlist á flygilinn í stofunni.
Fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.
www.gljufrasteinn.is


KÓPAVOGUR

Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn
Hamraborg 4
Opið frá 11 -17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Góðir Íslendingar; innsetningum Finnboga Péturssonar  og Árna Páls Jóhannssonar
Á neðri hæð safnsins er sumarsýning Gerðar Helgadóttur.
www.gerdarsafn.is

Tónlistarsafn Íslands
Hábraut 2, Kópavogi
Opið frá 13-17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Sýning um Sveinbjörn Sveinbjörnsson.
www.tonlistarsafn.is


GARÐABÆR

Hönnunarsafn Íslands
Garðatorgi 1, Garðabæ
Opið frá 12-17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Á íslenska safnadaginn verður ratleikur við hæfi allrar fjölskyldunnar um sýninguna Hlutirnir okkar. 
Tilboð á útgáfum safnsins í safnbúð og sala á skyrkonfektinu frá Erpsstöðum.
www.honnunarsafn.is

Burstabærinn Krókur
Garðaholti, Garðabæ
Opið frá 13-17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn

Hofsstaðir – minjagarður
Kirkjulundi, Garðabæ
Opið allan sólarhringinn
Ókeypis aðgangur


HAFNARFJÖRÐUR

Hafnarborg
Strandgötu 34, Hafnarfirði
Opið frá 12-17
Ókeypis aðgangur alla daga
Dagskrá: Fjölskylduleiðsögn og
vinnustofa kl. 14
Leiðsögn kl. 15
www.hafnarborg.is

BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR
     Byggðasafn Hafnarfjarðar
     Lifandi og fróðlegt safn fyrir alla fjölskylduna, tíu sýningar í sex húsum, Góðtemplarahúsið, Pakkhúsið, 
     Sívertsens-hús, Beggubúð, Siggubær, Bungalowið og Strandstígurinn. 
     Opið frá 11-17
     Ókeypis aðgangur 
     Heimasíða

     Góðtemplarahúsið – Gúttó 
     Suðurgötu 7, Hafnarfirði
     Í Góðtemplarahúsinu er að finna sýningu um upphaf  rafvæðingar í Hafnafriði.

     Pakkhúsið
     Vesturgötu 8, Hafnarfirði
     Sýningar: „Rafha - Draumaverksmiðja íslenskra húsmæðra.“ „Þannig var... .“  Saga Hafnarfjarðar 
     frá landnámi til okkar daga. Á efstu hæð hússins er að finna litríka 
     leikfangsýningu fyrir börn og fullorðna.

     Sívertsens-hús
     Vesturgötu 6, Hafnarfirði
     Húsið er staðsett á Byggðasafnstorginu.

     Beggubúð
     Kirkjuvegi 3b, húsið er staðsett á Byggðasafnstorginu í húsinu er verslunarminjasýning Byggðasafnsins.

     Siggubær
     Kirkjuvegur 10, gegnt Hellisgerði
     Við Siggubæ er auk þess opin sýningin Álfar og álafatrú.

     Bungalowið
     Vesturgötu 32, Hafnarfirði
     Í húsinu er sögu erlendu útgerðarinnar í upphafi 20. aldar gerð skil en húsið er jafnframt 
     einstakur safngripur og var það opnað sem sýningar- og móttökuhús árið 2008 
     eftir umfangsmiklar endurbætur.

     Strandstígurinn, Hafnarfirði
     Á strandstígnum meðfram höfninni í Hafnarfirði er Byggðasafn Hafnarfjarðar með sýningaraðstöðu fyrir 
     ljósmyndasafn sitt. Þar má sjá ljósmyndir Guðbjarts Ásgeirssonar, lífið við sjóinn sem settar hafa 
     verið upp í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands.


VESTURLAND

Byggðasafnið að Görðum, Akranesi
Opið frá kl. 10 – 17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Málverkasýning Bjarna Þórs Bjarnasonar, Tól-List, stendur yfir í sýningarsal safnsins
Í Fróðá er ljósmyndasýning Friðþjófs Helgasonar
www.museum.is

Safnahús Borgarfjarðar
Bjarnarbraut4-6, Borgarnesi
Opið frá 13-18
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Leiðsögn á staðnum
www.safnahus.is

Landbúnaðarsafn Íslands
Hvanneyri í Borgarfirði
Opið frá  12-17
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Dagskrá:  Safnleiðsögn
Borgfirskar engjar: létt fræðsluganga með leiðsögn Ragnhildar Helgu Jónsdóttur
Sýning um Litla varníngsbók Jóns forseta
www.landbunadarsafn.is

Sögumiðstöðin í Grundarfirði
Grundargötu 35
Opið kl. 10 – 18
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn.
Lifandi leiðsögn.
Leikfangasafn frá 7. áratugnum, sögusýningin „Hvernig varð nútíminn til?“ um tímabilið 1900 – 1950
ásamt ljósmyndasafni Bærings Cecilssonar. 
Kaffi Emil er opið.
Heimasíða


VESTFIRDIR

Minjasafn Egils Ólafssonar
Hnjóti í Örlygshöfn, við Patreksfjörð
Opið frá 11-19
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Dagskrá: Fyrirlestur Maríu Óskarsdóttur um mataræði sjómanna á fyrri tíð.
Einnig verða sýndar gamlar myndir frá Patreksfirði og úr
Barðastrandarsýslu.
www.hnjotur.is

Bókabúðin Flateyri
Hafnarstræti 3-5, 425 Flateyri
Opið frá 11-17
Ókeypis aðgangur
Dagskrá: Boðið er upp á morgunkaffi á heimili kaupmannshjónanna kl. 11 og eftirmiðdagskaffi kl. 16
og þá verður sagt frá sögu hússins og markmiðum Minjasjóðs Önundarfjarðar.
Börnum er boðið í “búðarleik” og ratleik.

Byggðasafn Vestfjarða
Neðstakaupstað á Ísafirði
Opið frá 9-18
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
Sýning á sjóminjum frá síðustu öld í
Turnhúsinu, sýning um strandhlunnindi og nytjar þeirra, Lítil fiskibók, sýning um ævi og störf Jóns
Sigurðssonar, harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar o.fl.
 www.nedsti.is


NORÐURLAND

Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
á Reykjum í Hrútafirði
Opið frá 10-18
Lækkaður aðgangseyrir: 500 kr. í tilefni dagsins, ókeypis aðgangur fyrir börn yngri en 16 ára
Kl. 13-16 kemur Þór Magnússon fyrrverandi þjóðminjavörður í heimsókn og segir frá merkum munum safnsins.
Munir safnsins hafa orðið mörgum innblástur nýrra verka og munu góðir gestir mæta og vinna handverk á staðnum.
www.leikir.org/safn/

Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
Árbraut 29, Blönduósi
Opið frá 10 – 17
Kaffi og kleinur innifalið í aðgangseyri - ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Dagsskrá: Frá kl. 14.00 verður tekið ofan af, kembt, spunnið og prjónað. Einnig verður sýndur margskonar
útsaumur, auk þess heklað, gimbað og slegið í vef. Sumarsýning safnsins "Úr smiðju vefarans mikla" -
yfirlitssýning á verkum Guðrúnar J. Vigfúsdóttur, veflistakonu.
www.simnet.is/textile

Byggðasafn Skagfirðinga
í Minjahúsinu á Sauðárkróki og Glaumbæ
Minjahúsið er opið frá 13 - 21.
Í Glaumbæ er opið frá 9 - 18.
Ókeypis aðgangur í tilefni dagsins
www.skagafjordur.is/byggdasafn

Byggðasafnið Hvoll á Dalvík
Við Karlsrauðatorg
Opið frá  11 - 18
Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
www.dalvik.is/byggdasafn

MENNINGARMIÐSTÖÐ ÞINGEYINGA
     Safnahúsið á Húsavík
     Opið frá 10-18 
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn.
     Mannlíf og náttúra. Sjóminjasýning. Ljósmyndir og fornleifar 
     www.husmus.is

     Grenjaðarstaður
     glæsilegur torfbær í Aðaldal,
     S-Þingeyjarsýslu. 
     Kaffi og nestisaðstaða.
     Opið frá 10-18.
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn.
     www.husmus.is

     Byggðasafn N-Þingeyinga við Snartarstaði
     Forvitnilegt muna- og bókasafn. Kaffisala og barnaherbergi.
     Opið frá 13-17.
     Ókeypis aðgangur í sumar.
     www.husmus.is


AKUREYRI

MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI
     Minjasafnið á Akureyri
     Aðalstræti 58
     Opið frá 10-17
     Enginn aðgangseyrir í tilefni dagsins
     Dagskrá: Leiðsögn um sumarsýninguna Álfar og huldufólk.
     Kanntu álfasögu?  Starfsfólk safnsins hlustar og skráir.
     www.akmus.is

     Gamli bærinn Laufás
     Grýtubakkahreppi, 30 km austan Akureyrar
     Opið frá 9-18
     Enginn aðgangseyrir í tilefni dagsins
     Komdu í heimsókn og smakkaðu rabbabarasaft og jurtate 
     í umhverfi frá aldamótunum 1900.
     www.akmus.is

     Nonnahús
     Aðalstræti 54, Akureyri
     Opið frá 10-17
     Enginn aðgangseyrir í tilefni dagsins
     www.nonni.is

Iðnaðarsafnið á Akureyri
Krókeyri.
Opið frá 10 - 17
Ókeypis aðgangur fyrir alla.
www.idnadarsafnid.is


AUSTURLAND

Breiðdalssetur
Gamla kaupfélaginu á Breiðdalsvík
Opið frá 10-18
Aðgangur ókeypis á íslenska safnadaginn
Húsið verður opið en þar má sjá sýningar um málfræðinginn Dr. Stefán Einarsson,
jarðfræðinginn George P.L. Walker og jarðfræði Austurlands.
www.breiddalssetur.is

Minjasafn Austurlands
Laufskógum 1, Egilsstöðum
Opið frá 11-17     
Aðgangur ókeypis
Sýning íþróttafélagsins ÚÍA um starfstemi þess í gegnum árin
Íþróttir fornmanna
kl.11-13         Þrautir, aflraunir og kastfimi
kl.14-16         Gamli knattleikurinn
kl.15-17         Glíma
www.minjasafn.is

SAFNASTOFNUN FJARÐABYGGÐAR
     Íslenska stríðsárasafnið
     Spítalakampi v/Hæðargerði, Reyðarfirði
     Opið frá 13 til 17 
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn. 
     Heimasíða

     Sjóminjasafn Austurlands
     Strandgötu 39b, Eskifirði
     Opið frá 13 til 17 
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn. 
     Heimasíða

     Safnahúsið í Neskaupstað
     Náttúrugripasafnið í Neskaupstað
     Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar
     Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar
     Egilsbraut 2, Neskaupstað
     Opið frá 13 til 17 
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn.
     Heimasíða

Minjasafnið á Bustarfelli
Innst í Hofsárdal í Vopnafirði, u.þ.b. 20
km frá þorpinu Tanga.
Opnunartími 10-18.
Aðgangur ókeypis fyrir börn að 9 ára aldri.
Lifandi safn á safnadaginn. Áhugaverð dagskrá frá 14 -17 fyrir alla fjölskylduna.
www.bustarfell.is


SUÐURLAND

BYGGÐASAFN ÁRNESINGA
     Húsið á Eyrarbakka – Byggðasafn Árnesinga
     Opið frá 11-18
     Ókeypis aðgangur á íslenska safnadaginn
     Dagskrá:  Sýning í borðstofu Hússins: Fundað í Fjölni – af vettvangi Sýslunefndar 
     Árnessýslu 1911.   
     Kl. 14: Tónleikar í stássstofu Hússins á Eyrarbakka. Gísli Stefánsson bariton 
     syngur úr Íslenska söngvasafninu. Guðjón Halldór Óskarsson spilar undir 
     á gamla píanóið.
     www.husid.com

     Sjóminjasafnið á Eyrarbakka  
     Túngötu 59, Eyrarbakka
     Opið frá kl 11-18
     Ókeypis aðgangur
     Dagskrá: Í forsal ljósmyndasýningin Allir í leik
     www.husid.com

     Þuríðarbúð á Stokkseyri
     við Strandgötu
     Opin á öllum tímum
     Ókeypis aðgangur 
     www.husid.com

     Rjómabúið á Baugsstöðum
     austan Stokkseyrar
     Opið frá 13-18
     Aðgangseyrir kr. 500
     Vélar verða gangsettar fyrir gesti
     www.husid.com

Listasafn Árnesinga
Austurmörk 21, Hveragerði
Opið frá 12-18
Ókeypis aðgangur
Fjölskylduleikur á Íslenska safnadeginum
www.listasafnarnesinga.is

Byggðasafnið í Skógum
Skógum, Hvolsvelli
Opið frá 9-18
Ókeypis aðgangur fyrir börn og unglinga að 16 ára aldri og eldri borgara á íslenska safnadaginn. 
Ókeypis aðgangur fyrir alla á alla viðburði í Samgönguminjasafninu á íslenska safnadaginn.
Jazzhátíð á laugardaginn. Áhugasömum gefst kostur á að líta inn í nýbyggt geymsluhús.
www.skogasafn.is


REYKJANES

Byggðasafn Garðskaga
Skagabraut 100, Garði.
Opið frá 13 – 15
Ókeypis aðgangur alla daga, fyrir alla.
Heimildarmynd um árásina á Goðafoss sem sökkt var af Þýskum kafbáti í Garðsjó árið 1944,
er sýnd á safninu í sumar.
Heimasíða

DUUSHÚS Í REYKJANESBÆ
Listasafn Reykjanesbæjar
Sumarsýningin eitthvað í þá áttina,
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Sýning um sögu Keflavíkurflugvallar Völlurinn, nágranni innan girðingar og rúmlega 100 bátalíkön
í bátasal.
Opið frá 13 til 17
Ókeypis aðgangur
Opið á sama tíma í Stekkjarkoti
http://byggdasafn.reykjanesbaer.is/default.aspx


 

Íslenski safnadagurinn

Almennt um Íslenska safnadaginn:

Íslenski safnadagurinn var fyrst haldinn 1997, að frumkvæði Íslandsdeildar ICOM, alþjóðaráðs safna. Kynning dagsins var til margra ára í umsjá Íslandsdeildar ICOM, en árið 2005 tók skrifstofa safnaráðs við framkvæmd kynningar á honum. Íslenski safnadagurinn er annar sunnudagur í júlí ár hvert.

Markmið Íslenska safnadagsins
Markmið með íslenska safnadeginum er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar hinna sameiginlegu verðmæta þjóðarinnar og jafnframt um þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og afþreyingar fyrir alla, sem stofnanir í safnastarfi ástunda.

Dagskrá Íslenska safnadagsins
Söfn eru árlega hvött til að halda daginn hátíðlegan á einn eða annan hátt í dagskrá sinni. Sl. ár hefur slagorð dagsins verið "fyrir fjölskylduna" og söfn hvött til að bjóða upp á dagskrá fyrir alla fjölskylduna í tilefni dagsins. Flestöll söfn bjóða jafnframt upp á ókeypis aðgang í tilefni dagsins. Íslandsdeild ICOM sá til margra ára um framkvæmd á kynningu dagskrár Íslenska safnadagsins.  Undirbúningsnefnd Íslenska safnadagsins, sem í sitja, auk frkv.stj. safnaráðs, fulltrúar höfuðsafna (Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands og Náttúruminjasafns Íslands), Íslandsdeildar ICOM og Félags íslenskra safna og safnmanna,  sér um að ákvarða útfærslu á kynningu og skrifstofa Safnaráðs sér um frekari framkvæmd.

Auglýsingar fyrir Íslenska 
Söfn auglýsa sameiginlega fyrir Íslenska safnadaginn, þar sem dagskrá safnadagsins er kynnt og athygli vakin á blómlegri starfsemi á þessu sviði.

Smelltu hér fyrir dagskrá íslenska safnadagsins 2010

Smelltu hér fyrir dagskrá Íslenska safnadagsins 2009

Smelltu hér fyrir dagskrá Íslenska safnadagsins 2008

Smelltu hér fyrir dagskrá Íslenska safnadagsins 2007

Smelltu hér fyrir dagskrá Íslenska safnadagsins 2006

Smelltu hér fyrir dagskrá Íslenska safnadagsins 2005