Ritstjórnarstefna - drög


Um Safnastarf.is

Safnastarf.is er upplýsingasíða sem Safnaráð heldur úti til þess að gefa íslenskum söfnum, sýningum og setrum kost á að kynna starfsemi sína á sameiginlegum vettvangi á veraldarvefnum.


Markmið Safnaráðs með heimasíðunni eru


Aðgangur að heimasíðunni

Söfn, setur og sýningar geta óskað eftir skráningu á síðuna og aðgangi að uppfærslu eigin upplýsinga þar.

Skráning á síðuna byggist á sýningu, ekki stofnun. Þannig getur eitt safn skráð fleiri en eina sýningu á síðunni.

Aðgangur er veittur eftir að umsóknaraðili hefur samþykkt ritstjórnarstefnuna og þar með skuldbundið sig til þess að hlýta henni.

Hvert safn/setur/sýning útbýr eigið lykilorð og sér sjálft um að uppfæra allar upplýsingar á eigin undirsíðu. Skráningin birtist á safnastarf.is eftir að Safnaráð hefur samþykkt aðildina.


Kostnaður

Safnaráð greiðir kostnað við heimasíðuna og lénið en hvert safn/setur/sýning sér sjálft um að skrá inn upplýsingar um eigin starfsemi á undirsíðu sinni og uppfæra þær og stendur straum að kostnaði við þá vinnu.


Hlekkur á safnastarf.is á forsíðu

Mælst er til þess að þeir sem eiga aðild að Safnastarf.is hafi á forsíðu eigin heimasíðu hlekk á Safnastarf.is. 


Uppfærðar upplýsingar

Mikilvægt er að upplýsingar aðildarsafnanna séu uppfærðar reglubundið. Dagsetning síðustu uppfærslu birtist á undirsíðu hvers safns/seturs/sýningar. Safnaráð mun tvisvar á ári fara yfir allar undirsíður og skoða hvort upplýsingar hafa verið uppfærðar. Verði misbrestur á þessu getur Safnaráð lokað aðgangi viðkomandi safns/seturs/sýningar. Áður en til þess kemur mun Safnaráð senda safninu/setrinu/sýningunni ábendingu um að þörf sé á að uppfæra upplýsingar á www.safnastarf.is


Leyfilegar upplýsingar á safnastarf.is 

Safnastarf.is er upplýsingasíða um safnastarf í landinu og á einungis að þjóna þeim tilgangi. Þar skal ekki birta upplýsingar um vöru og þjónustu sem ekki tengjast beint starfsemi safns/sýningar/seturs eða aðrar upplýsingar ótengdar safnastarfinu. Upplýsingarnar skulu vera óhlutdrægar en ekki láta í ljós skoðun eða álit. Upplýsingarnar skulu vera hnitmiðaðar og almennar. Ljósmyndir skulu vera af byggingum, starfsemi eða þjónustu safnsins/setursins/sýningarinnar.

Þjónusta í boði 
Við myndirnar til hægri merkir safnið við þá þjónustu sem er í boði á staðnum. Vinsamlegast athugið að merkja ekki við hjólastólaaðgengi nema um sé að ræða gott aðgengi hjólastóla, þannig að hjólastólar eigi greiða leið um a.m.k. hluta sýninga, salerni og aðra nauðsynlega aðstöðu..