Umsóknir um leyfi til útflutnings menningarverðmæta

Skv. 2. gr. laga nr. 105/2001 er óheimilt að flytja úr landi forngripi, listgripi, skjöl, bækur, samgöngutæki og aðrar menningarminjar sem taldar eru upp í lögunum og uppfylla ákveðin skilyrði skv. þeim, nema formlegt leyfi frá Safnaráði skv. 3. mgr. laganna komi til. Sótt er um leyfi skriflega til Safnaráðs.

Náttúrufræðistofnun Íslands veitir slíkt leyfi ef um er aðræða útflutning náttúrugripa skv. 4. mgr. 15. gr. laga nr. 60/1992.


SMELLTU HÉR FYRIR UMSÓKNAREYÐUBLAÐ VEGNA UMSÓKNAR UM LEYFI TIL ÚTFLUTNINGS MENNINGARVERÐMÆTA


Eftirfarandi verklag er viðhaft varðandi leyfisveitingar (ath. að um drög er að ræða, eftir er að fullmóta verklagið):

Tímabundinn útflutningur forngripa, listgripa, skjala, bóka, samgöngutækja og annarra menningarminja, er flokkast sem menningarverðmæti skv. lögum, úr landi:
• Umsækjandi sendir skriflega umsókn til Safnaráðs.  Í umsókninni komi fram allar þær upplýsingar sem nauðsynlegt er að séu fyrir hendi varðandi fyrirhugaðan útflutning m.a.:

     1. Upplýsingar um þann aðila sem að útflutningnum stendur.
     2. Nákvæmar upplýsingar um þau verðmæti sem fyrirhugað er að flytja úr landi.
     3. Upplýsingar um hvernig fyrirhugað er að flytja verðmætin, pökkun og flutningur.
     3. Upplýsingar um þann aðila sem mun hafa verðmætin í sinni vörslu erlendis.
     4. Upplýsingar um hvenær verðmætin munu verða flutt aftur til Íslands.

• Safnaráð leitar álits Þjóðminjasafns Íslands, Fornleifaverndar ríkisins, Þjóðskjalasafns, Listasafns Íslands eða annarrar ríkisstofnunar er málið varðar eftir því um hvers konar menningarverðmæti er að ræða.

• Safnaráð ályktar um málið í samræmi við mat umsagnaraðila. Framkvæmdastjóri Safnaráðs hefur umboð ráðsins til að gefa út leyfi fyrir hönd ráðsins ef umsagnaraðilar veita samþykki fyrir útflutningi og ef ekki er um álitamál að ræða.

• Leyfi til útflutnings skal að jafnaði veitt til eins árs í senn, með möguleika á framlengingu í eitt ár.

• Leyfi Safnaráðs til útflutnings menningarverðmæta eru gefin út á ensku og skal leyfið fylgja verðmætunum á áfangastað. Leyfið skal einnig fylgja verðmætunum aftur til Íslands (ef ekki er um að ræða sýni sem eyðast við rannsókn að ræða).

• Safnaráð skal tryggja að forngripir úr fornleifauppgröftum, sem lánaðir eru úr landi hafi áður verið skráðir í viðkomandi höfuðsafn.

• Sé um að ræða verðmæti sem lánuð eru tímabundið til sýninga erlendis veitir  menntamálaráðuneyti samþykki sitt fyrir útflutningnum í samræmi við 7. gr. safnalaga. Auk þess er í slíkum tilfellum þörf á skriflegu samþykki forstöðumanns viðkomandi höfuðsafns. Sé um að ræða verðmæti sem send eru tímabundið erlendis í rannsóknarskyni er ekki þörf á samþykki frá menntamálaráðuneyti v. útflutnings.

• Safnaráð sendir úrskurð sinn og lista yfir gripi sem veitt er leyfi til að flytja úr landi til menntamálaráðuneytis til samþykkis ef um er að ræða útflutning v. sýninga.  Ef um er að ræða útflutning í rannsóknarskyni er úrskurður sendur til umsagnaraðila og umsækjanda og menntamálaráðuneyti tilkynnt um útflutninginn með bréfi.

• Umsækjandi ber ábyrgð á að frágangur og pökkun sé með tryggilegum hætti í samræmi við veittar upplýsingar.

• Þegar verðmætin hafa borist til baka til Íslands sendir umsækjandi Safnaráði skýrslu þar um.  Skýrslan innihaldi upplýsingar um breytt ástand verðmætanna ef svo ber undir.