Nýting styrkja úr safnasjóði árið 2014

Skilafrestur skýrslu um nýtingu styrks er til 30. apríl 2016

Samkvæmt safnalögum ber þeim sem fá styrk úr safnasjóði að skila lokaskýrslu innan árs frá áætluðum lokum verkefnis. Nú líður senn að því að tvö ár séu liðin frá úthlutun styrkja árið 2014 og þar sem styrkir eru veittir til eins árs má gera ráð fyrir að ár verði liðið frá lokum allra verkefna þann 30. apríl n.k.
Skýrslum um nýtingu styrkja úr safnasjóði skal því skilað í síðasta lagi þann 30. apríl 2016 á eyðublöðum sem fást á heimasíðu safnaráðs  (DOC skjal)HÉR
Greinargerð skal skila í einu undirrituðu eintaki sem sent er í pósti, auk afrits í tölvupósti  til: safnarad@safnarad.is
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu ráðsins.