Ráðning framkvæmdastjóra safnaráðs

 

Safnaráð hefur ráðið Þóru Björk Ólafsdóttur sem framkvæmdastjóra safnaráðs.

Þóra Björk er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og MA gráðu í safnafræði frá Háskóla Íslands. Þóra hefur meðal annars starfað sem sérfræðingur á fjármála- og þjónustusviði hjá Þjóðminjasafni Íslands og leyst af sem sviðstjóri þar, hjá Náttúruminjasafni Íslands, auk þess að hafa unnið að verkefnum fyrir safnaráð.

Alls sóttu 27 um stöðuna og var ráðningaferlið í höndum valnefndar á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis og safnaráðs.